Tvískiptur afturhleri í Škoda Superb sameinar helstu kosti skutbíls og glæsileika hefðbundins fólksbíls. Og nýstárleg vinnubrögð við hönnun eiga sinn þátt í að gera Superb að hrífandi ökutæki. Mikið rými fyrir farþegana og vönduð efni í innréttingunni gera íveruna í bílnum með afbrigðum þægilega.


Í Superb koma nú fram ýmsar nýjungar í búnaði. Má þar nefna öryggispúða fyrir hné ökumanns ásamt hliðarpúðum afturí (alls 9 öryggispúðar), hindrunarvara og Bi-Xenon aðalljóker með beygjubúnaði.


Með 160 hestafla bensínvélinni er í boði ný gerð af sjálfskiptum gírkassa með tvítengsli (DGS) sem hægt er að stjórna með rofum í stýrishjóli.

 

Hin glæsta innrétting þar sem vönduð efni í ljósum litum ráða ríkjum (vefnaður, leður og leðurlíki) er í fullu samræmi við aðra kosti Elegance gerðarinnar. Klæðningin á mælaborðinu er í tveimur litum (svart/beinhvítt).

Tvískiptur afturhleri

Tvískipta skuthurðin í Superb er sannkallað tækniundur sem vekur aðdáun sérhvers ökumanns fyrir hagkvæmna virkni. Ef þú þarft t.d. að koma fyrir minniháttar farangri í geymslunni, opnar þú einfaldlega neðri hlutann eins og þú myndir gera á fólksbíl af gerð stallbaks. 


En flutningur á rúmfrekum farangri er ekki heldur neitt vandamál fyrir Superb. Þá er efri hluta skuthurðarinnar ásamt afturrúðu einfaldlega lokið upp og með því opnast skutdyrnar alveg upp á þak bílsins. Þannig fæst þægilegt aðgengi að farangursými, sem hægt er að auka úr 565 lítrum að rúmtaki í 1670 lítra með því að fella niður bök aftursætanna.  


Og enn eitt snilldarbragð hjá Skoda. Nú þarf ekki lengur að skella hurðunum til þess að þær lokist kyrfilega. Það nægir að leggja þær að stöfum, því sjálfvirkur rafbúnaður lokar þeim að fullu. Þetta er aðeins eitt dæmi um hve Superb er hugvitsamlega búinn bíll.
 


 

Bi-Xenon aðalljósker með fjölvirkri aðlögunarhæfni

Aðalljóskerin í Superb eru með nýstárlega lögun og ná alveg út á hliðar frambrettanna, sem gefur framenda bílsins öflugan og athyglisverðan svip. 


Auk þess að veita afbragðs góða lýsingu eru Bi-Xenon aðalljóskerin búin fjölviknikerfi sem aðlagar virkni ljóskeranna að ýmsum ólíkum akstursaðstæðum. Til dæmis fylgir lýsingin stefnu framhjólanna í beygjum, breytist í samræmi við ökuhraða, akstur í regni og hvort ekið er í þéttbýli eða á hraðbraut.


Svokölluð túristalýsing verður virk þegar ekið er í landi þar sem umferðin fer ekki eftir sömu reglum og viðkomandi bifreið er framleidd fyrir. Þetta á t.d. við þegar bifreið sem ætluð er fyrir hægri handar umferð er ekið í landi þar sem vinstri handar umferð er við lýði, en þá breytir hinn aðlögunarhæfi ljósabúnaður stefnu ljósgeislanna, þannig að ekki er hætta á að ökumenn, sem á móti koma blindist.