Bíll sem kemur á óvart


Þessi nýi bíll frá Škoda sem ber nafnið Yeti einkennist af samblandi þeirra höfuðkosta sem prýða vandaða bifreið. Hér er átt við öryggi, fjölþætt notagildi og þægindi.

Nýjar gerðir hreyfla og nýjar tæknilegar lausnir svo sem rafeindastýrt aldrif til aksturs þar sem færð er slæm, tvöföld rafknúin sóllúga og færanlegar festilykkjur í farangursgeymslu. Allt eru þetta kostir sem fyrsti jepplingurinn frá Skoda er búinn; bíll sem mun koma þér skemmtilega á óvart.

Hlekkir

 Yeti

Einnig ber að geta hagnýtra smáatriða og fagurfræðilegs handbragðs, smáatriða sem stuðla að heildarmyndinni. 

Að utan

Athyglisverð lögun vatnskassahlífarinnar, ásamt fjórum aðalljóskerum, setur geðþekkan blæ á framenda bílsins og gefur fyrirheit um ánægjulegt samneyti. Afturhlutinn, sem er dæmigerður fyrir skutbíl, höfðar hins vegar til sjónarmiða um nýtingu og þægilegrar umgengni.

Ytri mál á Škoda Yeti eru öll innan hæfilegra marka og því er hann afar lipur í meðförum í þrengslum innanbæjar. Víðar hjólaskálar og silfraðar varnarplötur að neðan staðfesta styrk og eiginleika jepplings, sem er jafnvígur á allt malbik og torfærar leiðir. Gluggarnir, ásamt gluggapóstunum, gefa efri hluta yfirbyggingarinnar athyglisverðan svip að utan og þegar við bætist hin stóra sóllúga, verður farþegarýmið einstaklega björt og hlýleg vistarvera.

Að innan

Škoda Yeti býður farþegum sínum óvenju mikið rými, fjölbeytta nýtingu og ómæld þægindi. Vegna þess hve sætin eru hástæð, verður útsýn úr bílnum meiri, aðgengi verður betra og farþegarnir finna sig öruggari. Sætin eru vel bólstruð með góðum hliðarstuðningi og stillanlegum halla á bökum og ásetan er þannig að enginn þarf að þreytast þótt langt sé ekið. Aftursætið er í þremur hlutum, sem hægt er að hagræða í samræmi við farþegafjölda og magn farangurs hverju sinni.

Mælaborðið er í samræmi við hönnun innréttingarinnar og undirstrikar ferskleika og vistvæn viðhorf. Fjölmörg geymsluhólf og notkun fyrsta flokks efna í innréttingum eru sjálfsagðir hlutir. Hægt er að velja um 16 mismunandi litasamsetningar á mælaborði, sætaáklæði og skrautleggingum.