SKODA AUTO HEFUR 
LEIÐANDI STÖÐU INNAN
TÉKKNESKS EFNAHAGLÍFS!

    Skoda Auto er stærsta útflutningsfyrirtæki Tékklands og hefur þar af leiðandi sérstaka stöðu innan tékknesks efnahagslífs. Fyrirtækið hefur viðhaldið forystuhlutverki sínu á heimamarkaði í Tékklandi þar sem Skoda bifreiðar hafa því sem næst 55 prósent markaðshlutdeild allra nýrra bíla.

    Kraftmikill vöxtur, árangursrík útrás á markaði út um víða veröld og rík áhersla á framleiðslugæði hjá Skoda Auto hefur haft margfeldisáhrif á birgja innanlands og erlendis, sem einnig hefur gefið tækifæri til vaxtar og aukinnar samkeppnisfærni. Um leið hefur Skoda Auto haft þau áhrif innan tékknesks iðnaðar að skapa honum ný viðskiptatækifæri.

    Með þessu hefur Skoda Auto óbeint skapað mörg þúsund ný störf, bæði í Tékklandi og annars staðar, og um leið lagt fram stóran skerf til aukinna lífsgæða innanlands sem utan. 

    Fyrst og fremst með nánum tengslum við viðskiptamannahóp sinn hefur Skoda Auto náð fram aukinni  samkeppnishæfni í hörðum heimi bílaframleiðslu og um leið hefur fyrirtækið aukið gæði framleiðslu sinnar.