Škoda Superb Combi

Núverandi kynslóð Superb býður upp á rúmgóðan bíl sem státar af margvíslegri nýtækni (TSI vélum, DSG gírskiptingu, ökuljósum með aðlögunarhæfni o.fl. 

 

Í skutbíls (Combi) útfærslunni af Superb er grunnrými farangursgeymslu 633/1,865 lítrar.  

Sóllúgan er 1,364 x 870 mm. Í báðum hlutum hennar er litað gler, sem eykur á vellíðan farþeganna með því að takmarka magn hitageisla í farþegarýminu. Stjórnbúnaður fyrir sóllúguna er í loftinu, innan seilingar frá ökumanni og farþega í framsæti. Undir allri sóllúgunni er svo hlífðartjald.

Rafknúinn afturhleri

Umgjörð afturhlerans fellur fullkomlega að hinum stílfögru og sterklegu útlínum Superb Combi. Ný gerð afturljóskera gefur svo heildarsvipnum aukna áherslu.

Afgerandi atriði til aukinna þæginda er hin fjarstýrða samlæsing á hurðum sem stjórnað er ýmist með rofa í kveikilykli, innan á skuthurð, eða með rofa á miðstokki. Auk þess er opnunarhæð skuthurðar stillanleg. Það tilheyrir því sögunni að óhreinka sig ef opna þarf skuthurðina í vondu veðri.

Búnaður skuthurðarinnar er í samræmi við ströngustu öryggiskröfur og í klæðningunni eru hátalarar, sem gefa frá sér hljóðræna viðvörun, ef eitthvað fer úrskeiðis varðandi virkni hurðarinnar.

Ný viðhorf varðandi farangur

Breytileg stærð farangursgeymslunnar er einn af ótvíræðum kostum nýju gerðarinnar af Superb. Grunnrýmið sem er 633 lítrar er unnt að stækka upp í 1865 lítra með því að fella aftursætin niður og þannig verður mögulegt að flytja fyrirferðarmikinn varning.  

Ný viðhorf fela meðal annars í sér (ekki staðalbúnaður á öllum gerðum) festibúnað í gólfi fyrir farangur, sjálfvirka draghillu yfir farangursgeymslu, sex festilykkjur fyrir pakkanet og færanlegt díóðuljóker. Innan á hurðinni eru tveir lampar, sem lýsa upp geymsluna og umhverfið aftan við bílinn, þegar skutdyrnar eru opnar. Aðgengi að geymslunni er aðeins í 600 mm hæð og til þess að verja stuðarann fyrir skemmdum af meðferð stórra og þungra hluta, er sérstök framlenging á gólfi geymslunnar.