Reglubundið viðhald á bílnum – tryggir öryggi og að bíllinn sé ávallt í lagi
Að hausti til og vetri. Lágt hitastig, mikill raki, snjór, hálka og tærandi salt og sandur á götunum. Ökumenn eiga að búast við slíkum aðstæðum og búa bílana sína vandalega undir þær. Bifvélavirkjar hjá viðurkenndum umboðsaðilum Skoda annast allt eftirlit og vinna nákvæmlega í samræmi við leiðbeiningar frá framleiðanda. Þess vegna getur þú treyst því að þeir búi bílinn þinn á fullkominn hátt undir vetraraksturinn.